"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, september 26, 2003

Dagur tvö.

Vá, hvað þetta er æpandi litur - djís! Er að gera smá tilraun með bakgrunn og svoleiðis, ég held ég hafi þennan lit ekkert til lengdar en ég læt hann þó vera í nótt. B.t.w það tók mig klukkustund að gera þennan bakgrunn - eða að fatta eiginlega hvernig ég ætti að fara að því. Já, hún er sko þrautseig stúlkan, eða kallast það kannski bara þrjóska?

Jæja dúllurnar mínar, ég ætla að drífa mig í rúmið. Ég þarf að vakna kl. 7 í fyrramálið til að fara snyrta þunnildi (sem ég á til að kalla lausafög, veit ekki afverju), eins og Jói segir - lífið er saltfiskur. Góða nótt öllsömul!

|