"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, september 26, 2003

Gallasouinda

Já ég verð víst að útskýra aðeins tott nefnið... ég var búin að vera að kvarta yfir því við Brynju að hún þurfti að alltaf að útskýra hvaða Lindu hún væri að meina þegar hún var að tala um mig. Ég var orðin þreytt á þessu; æi þú veist Linda systir hans Magna”, eða Linda í Garðinum” eða Linda litla” – LITLA hvað!? Áður en ég vissi var ég orðin Linda tott. Brynja hikaði ekki að segja fólki að hún væri á rúntinum með Lindu tott. En þetta batnaði ekkert fyrir vikið því það fylgdi alltaf í kjölfarið; æi þú veist Linda systir hans Magna... Anywho, ég ákvað bara að taka þátt í gríninu, maður verður víst að hafa smá húmor fyrir hlutunum. Ég hugsa líka að ef ég nota þetta nógu mikið þá fer fólk kannski að gleyma þessum Magna.

|