"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, júní 30, 2006

jahá!

Jubbíkóla, ég á afmæli í dag! Ekki venjulegt afmæli, heldur brúðkaupsafmæli... Þannig er mál með vexti að foreldrar mínir giftu sig fyrir 21 ári. Ég var 4 ára þá og var alveg rosaleg pappastelpa. ég var alveg á því að við hefðum ÖLL verið að gifta okkur. Það endaði með því að það þurfti að fara með mig í næstu sjoppu og kaupa handa mér nammihring því mér fannst alveg einstaklega ósanngjarnt að mamma mín fengi bara hring. Svo sýndi ég öllum vegfarendum hringinn minn og sagði öllum að við hefðum verið að gifta okkur.

Ekki amalegt að eiga 21 árs brúðkaupsafmæli aðeins tæplega 25 ára gömul.

|