loveliness
Lífið hefur svo sannarlega bankað upp á hjá mér og mínum undarfarna
daga. Vorið nær alltaf að vekja upp hjá mér pælingar um lífið, það er
eitthvað svo undarleg tilfinningin að takast á við dauðann þegar allt
umhverfið í kringum mann er að springa út af lífi.
...
Það er margt í þessum heimi sem við fáum ekki við ráðið, sem við getum með
engu móti stjórnað. Maður verður óneitanlega reiður þegar maður heyrir af
góðu fólki sem deyr fyrir aldur fram á meðan aðrir sem bera enga virðingu
fyrir lífi sínu, né annara, fá að halda í það til gamals aldurs. Ég átti í
þessum samræðum við góðvinkonu mína um helgina og get ekki annað en verið
sammála henni um að stundum vildi maður geta tekið líf allra úrhraka
heimsins og gefið það góðu fólki sem stendur andspænis dauðanum. En maður
má ekki dvelja við þannig hugsanir. Maður hefur lítinn rétt á því að hugsa
svona og ekkert vald til að stjórna svona hlutum. Við getum hins vegar
stjórnað því hvernig við nýtum okkar eigin líf og hvaða áhrif við höfum á
fólkið í kringum okkur. Einbeitum okkur því frekar að því.
...
Annað sem er óendanlega sárt, eru þessar litlu augnabliks ákvarðanir sem
geta haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér. Þessi örskots moment sem
ekki verða afturtekin.
...
Notum hjálma, setjið reiðhjólahjálma á börnin ykkar, spennið beltin, ekki
keyra eins og vitleysingar...
...það er ekki að ástæðulausu sem við fáum send þessi skilaboð daglega.
Reynslan kennir okkur það að það eru bara litlu hlutirnir sem við fáum við
ráðið. Þeir eru einu valmoguleikarnir sem við fáum upp í hendurnar. Þeir, ásamt
tækifærinu til þess að njóta lífsins sem við höfum fengið.

ást og friður.

<< Home