Ótrúlegt!
Þegar ég var lítil stelpa þá fór amma mín oft með vísur fyrir okkur. Það var ein vísa sem festist algjörlega í mér. Ég mundi aldrei almenninlega hvernig hún hafði verið, mundi bara að hún var mjög hræðileg og eitt erindið fjallaði um strák og annað um stelpu. Ég man líka eftir því að ég var alltaf skíthrædd þegar amma fór með þessa vísu. Ég fann hana áðan á Vísindavefnum:
Tíminn líður, trúðu mér,
taktu maður vara á þér,
heimurinn er sem hála gler,
hugsaðu um hvað á eftir fer.
Það á að strýkja strákaling,
stinga honum ofan í kolabing,
loka hann úti í landsynning,
láta hann hlaupa allt um kring.
Það á að strýkja stelpuna,
stinga henni ofan í mykjuna,
loka hana úti og lemja hana
og láta hann bola éta hana.
Já, hún amma mín kunni sko að ala upp börn.

<< Home