"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, september 29, 2003

Já, túrverkir... hvaða djöfulsins hálfviti fann þetta helvíti upp? Og hvernig í fjandanum lenti það á okkur kvenfólkinu að þurfa að fá þá? Ok,ok, þið strákarnir hafið standpínuna – mér er drullusama!
Hvernig í fjandanum haldið þið að það sé að vera með logandi verki í iðrunum sem koma í stingandi krampaköstum? Verki sem leiða niðrí tær, um bakið og upp í haus. Maginn á manni er á suðupunkti og maður veit ekki hvort sé betra að strjúka hann eða sleppa því. ALLT sem maður gerir er óþægilegt, hver einasta helvítis hreyfing. þegar krampaköstin ná svo hámarki reynir maður að grípa í næstu stoð svo maður lympast ekki niður í gólf. Bítur í jaxlinn og svitinn sprettur fram úr öllum krókum og kimum líkamans. Skyndilega er krampinn afstaðinn og maður verður alveg máttlaus, ótrúleg vellíðunartilfinning hríslast um líkamann þangað til að maður áttar sig á því; “oh, my god, þetta er að byrja aftur!”. EN, þetta er ekki það eina! Á meðan öllu þessu stendur vonar maður að helvítis dömubindið haldi sig þangað til að krampinn er afstaðinn. Að maður komist á klósettið áður en það verði gegnsósa og fari að leka – það er fátt ógeðslegra en að hafa storknað túrblóð á milli læranna á sér. Málið er að blóðið tollir ekkert í bindinu eða tappanum - það vill komast í lakið.

|