"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, september 29, 2003

Mánudagsröfl

Jæja, helgin heppnaðist líka svona með eindæmum vel. Gerði ekkert á föstudeginum, mér finnst mjög gaman að þurfa ekki að gera neitt og reyni því að gera það eins oft og ég mögulega get...uhm...æ, þið skiljið.
Anywho, á Laugardagskvöldið var svo sprellið. Aðallinn kom saman, át og datt í það. Metþáttaka, mjög gaman, Linda tott ógeðslega full langt fram eftir nótt og fram á morgun eiginlega. (ef ykkur finnst ég vera e-ð stutt í spuna þá getið þið hætt að lesa og drullað ykkur af síðunni minni. Ég held ég sé enn þunn e. Laugard.kvöldið og ég er með ÓGEÐSLEGA túrverki. Ég skal tala meira um það á eftir...)
Ég vaknaði s.s. mjög dösuð kl. 16:12 í gær, ein heima í sófanum hjá Magna og Boggu. Fattaði svo að ég var búin að lofa mér í kaffi í Reykjavíkinni seinni partinn – úff! Frestaði því fram til kvöldsins og horfði á Boggu baka.
Ég þoli ekki hvað Bogga vinkona er dugleg. Á meðan ég svaf af mér gærdaginn fór hún og þreif frystihúsið þar sem við vinnum, bílinn sinn, fór í sund og kíkti í heimsókn. Kom svo heim, bakaði og gerði allt klárt fyrir kvöldmatinn (ég er viss um að ég sé að gleyma e-u). Ég verð að segja að ég dáist af henni, ég gæti ekki áorkað svona miklu á heilli viku!

|