"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, október 12, 2003

Ég elska þynnkudaga!

Ég fór á argasta fillerí í gær. Byrjaði kvöldið á að æla pönki á Grand Rokk. Geðveikir tónleikar hjá strákunum okkar. Þræddi svo miðbæ rkv og tja, drakk minn pissfulla. Skemmti mér alveg ótrúlega vel verð ég að segja. Mér finnst alltaf svo gaman af kvöldum sem fara allt öðruvísi en maður býst við. Ég var að spá í að vera ekkert að fara í bæinn í gærkvöldi en ákvað svo að skella mér á síðustu stundu. Endaði svo á djamminu með Bísbergi, aka Bessa, fram á morgunn. Við máluðum bæinn svo sannarlega rauðann. Djöfull var gaman. Alla vega ég vaknaði svo í morgun eftir svona 4 tíma svefn (fékk að gista hjá Einari Frey), drullumygluð og frekar þunn. Keypti mér hamborgaratilboð áður en ég fór heim. Eitt það fyrsta sem móðir mín sagði við mig þegar ég kom heim var „fékkstu það í nótt, þú ert í e-ð svo góðu skapi“. Mér fannst þetta undarleg fyrirspurn sérstaklega í ljósi þess að ég var með hálfan hamborgara framan í mér og maskara niður á kinn. Ég hef bara verið svona glöð yfir matnum mínum. Pabbi sagði mér að berja hana, sem er ótrúlegt en satt. Ég held að hann hafi sagt orðrétt „þetta er allt í lagi, þú mátt berja hana“. Síðan átu þau franskarnar frá mér. Eftir þessa yndislega óhollu máltíð þá lagðist ég upp í rúm, dauðfegin því að hafa tekið til í herberginu mínu í gærkvöldi. Ég lá þarna og var að hugsa um hvað það væri yndislegt að rúmið mitt skildi vera ný-umbúið þegar foreldrar mínir ákváðu að ég skildi hjálpa þeim að flytja e-ð dót. Mér var hennt út í nístingskuldan í einhverjum druslum og mamma fór með mig að sækja allt draslið okkar í geymslu (við erum búin að vera að flytja). Ég þurfti s.s. að hjálpa konunni að bera drasl úr heilum bílskúr grautþunn, þreytt og nýbúin að éta FEITA máltíð. Ekki nóg með það heldur er mamma alveg sjúklega hrædd við mýs. Það var eiginlega helsta ástæða þess að hún vildi að ég kæmi með sér - svo ég gæti tekið alla kassana fyrst kíkt í þá og hrist þá rækilega áður en hún bar þá inn í bíl. Þetta var ekki til að bæta ástandið á mér. Ég held að mamma hafi sagt „ég ætla sko ekki að fá mús inn í hús til mín“ svona 17 sinnum meðan við vorum að gramsa í draslinu. Þess á milli horfði hún í kringum sig og upp í loft og varð hálf máttlaus við tilhugsunina um það að það gæti verið mús e-rs staða í skúrnum.
Ég náði svo að horfa smá á leikinn í dag á milli þess sem ég bar inn kassana framhjá sjónvarpinu. Ég komst að því að ástæðan fyrir því að ég fylgist ekki með íþróttum er vegna þess að ég hef ekki taugar í það. Ég fékk endurtekinn krampaköst í magann á meðan að á leiknum stóð.

|