fífur
Þegar ég vaknaði í morgun var ég dáin. Ég áttaði mig ekki á því um leið, ekki fyrr en ég sá svipinn á ömmu þar sem hún sat á rúmstokknum mínum. Mér var litið í kringum mig og sá að það var búið að festa verðmiða á allt sem ég átti, rúmið, fátaskápinn, meira að segja bækurnar mínar. Úti í horni stóðu menn klæddir jakkafötum að leggja mat á innanstokksmunina. Þeir voru ekki sammála um verðlagninguna, það var augljóst. Annar þeirra baðaði út höndunum í sífellu á meðan hinn hristi höfuðið á móti. Ég velti því fyrir mér afhverju allt sem ég ætti væri fallt og hversu mikils virði ég hefði eiginlega verið í lifanda lífi. Ég lá kyrr og lét hugann reika undrandi á því að ég gæti enn hugsað þótt ég væri látinn. Ég sá svefnherbergisdyrnar opnast og foreldra mína standa á ganginum, þau voru niðurlút en sýndu þó ekki mikil svipbrigði. Kötturinn minn kom hlaupandi inn í herbergið og stökk upp í rúmið þar sem ég lá. Ég gat lesið hvað hann var að hugsa, hann hlakkaði til að hafa rúmið mitt út af fyrir sig. „Þeir ætla að selja það“, hugsaði ég bitur. Ég heyrði útundan mér að jakkafatamennirnir voru að rífast. Ég fylgdist með þeim, þeir voru að rífast um það hvað hjartað í mér ætti að kosta. „Vigtum það“ sagði annar þeirra. „Ef hún hefur einhven tíma elskað í lífinu þá mun það vera jafn létt og fífa. Ég sá allt í einu fyrir mér risastórt tún fullt af dásamlega gulum sóleyjum og fíflum. Ég fann fyrir hita sólarinnar í andlitinu. Ég mundi eftir þessum degi, þetta var dagurinn sem ég kynntist Daniel...

<< Home