"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, október 12, 2003

Það var þó einn kostur við það að við sóttum draslið úr geymslu, ég náði í gömlu myndavélarnar hans pabba sem mig hefur dreymt um lengi að fá að munda. Ég gerði það loks í dag, fór og keypti batterí og filmur. Við erum búin að vera að taka nokkrar myndir hérna heima, erum bara öll svo helv... mygluð að ég held það sé skárra að bíða aðeins með pósurnar. Ég lærði þó a.m.k. mikið um ljósop og hraðastillingar - eða hvað sem það nú heitir allt ;)

|