verðandi hani óskast
„Er hann kannski svona heimskur?“ Hugsaði hún með sjálfri sér. Þau voru búin að vera í sambandi í nokkrar vikur. Þau höfðu samt bara hist einu sinni því hann bjó í Þýskalandi. Þau höfðu því aðallega stundað bréfaskriftir og sent hvort öðru skilaboð í gegnum símann. Hún hafði fallið fyrir honum um leið og hún sá hann. Hávaxinn og grannur með mikið dökkt hár. Það var eitthvað við hann sem heillaði hana. Nú meðan hún sat við tölvuna og spjallaði við hann fór hún allt í einu að efast mikið um þetta allt saman. Hann virtist ekki vera að skilja neitt sem hún sagði, hann gjörsamlega misskildi allt! Hún ákvað að skipta um umræðuefni. Þau spjölluðu um tónlist, kvöldið sem þau höfðu eytt saman og fóru svo að gantast í hvoru öðru. „Þú veist, þú ert alveg frábær“ sagði hann. Það þurfti ekki meira. Allur efi um hann hvarf og hún féll um leið fyrir honum aftur.

<< Home