"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, mars 14, 2004

holy moly!

jamm fórum ekki til Marseilles. Gærkvöldið samanstóð af krókudílavodka (og eftir að flaskan var tóm að borða hlaupkrókudílana sem voru gegnsýrðir af vodkanum...), hrökkbrauði og ólifumauki, gulrótum, gúrkum og rjómaosti, eplum, banönum og íslensku brennivíni... sátum s.s. bara hérna nokkur heima hjá Pétri og átum og drukkum og kjöftuðum. Eitt umræðuefnið hófst þegar Niko, vinur hans Péturs var að útskýra fyrir okkur nýjasta verkefnið sem hann er að vinna að. Hann er s.s. að skrifa allt handritið sem rithöfundurinn í "The Shining" var að skrifa í myndinni þar sem setningin

"all work and no play makes Jack a dull boy" ALl work and no play makes jack a dull boy...

er endurtekin aftur og aftur. Úr þessari setningu nær hann svo að fá orðin AL (munið eftir tölvunni AL) og Jeckyll og Hyde. Eftir einhvern tíma og einhverjar formúlur er setningin orðin

11 00 111 00 (ellin breytast í 1 og o-in breytast í 0) s.s. tölvumál... þetta virtist voða merkilegt en ég skil ekki ennþá markmiðið með þessum pælingum. Enda segir hann að hann sé ekki alveg búinn að vinna að þessu.


Við ákváðum reyndar í gærkvöldi að kíkja á ströndina í dag en ég var að vakna, veit ekki hvort við gerum það heldur, hmmm... sjáum til...

Jæja, kveð ykkur í bili elskurnar mínar, salut!

|