loving is good if your dick´s made of wood (damien rice)
Jæja, kannski voru þetta ekki Baskarnir eftir allt saman... ef þetta voru róttækir öfgahópar múslima þá vitið þið hvað það þýðir: Við erum í vondum málum! Já það er rétt, ef þetta hefur eitthvað með stríðið í írak að gera þá ættu íslendingar að vara sig. Helvítin þeir Davíð og Halldór vildu endilega þykjast stórkallar og fara í tindátaleik, þeir ættu þá að vera farnir að átta sig hvað þetta var allt mikil vitleysa OG íslendingar ættu að skammast sín fyrir að sitja bara hjá og leyfa þeim að gera þetta, Rollur! meeeeeeeee...
Mér var líka ekki alveg sama þegar Aude sagði mér að það hefði verið gerð tilraun til að sprengja lest hérna í Frakklandi fyrir nokkrum vikum. Það var s.s. hópur fólks sem vildi kúga stjórnvöldin hér um pening með því að hóta að sprengja lestir. Stjórnvöldin voru að semja við gaurana þegar fréttamenn komust á snoðir um þetta og uppljóstruðu því. Með þessu misstu stjórnvöld sambönd við mennina. Stuttu seinna fannst sprengja á lestarteinum milli Toulouse og Parísar, sem betur fer sprakk hún ekki. Stjórnvöld eru þó ekki búin að hafa hendur í hári tilraunamannanna. Ég verð fegin þegar ég kemst yfir landamærin til Belgíu.
Ég er enn í suðrinu, í Arles, litlum bæ í suður Frakklandi. Ég er hjá Pétri, gaurnum sem ég var að pasa fyrir forðum daga. Við fórum á nett djamm í gær. Fórum á n-afríkskan veitingastað og borðuðum kuskus og drukkum pastis og rauðvín. Vorum þar langt fram eftir kvöldi og fórum svo heim til vinar Péturs og drukkum krókudílavodka og viskí og horfuð á japanska teiknimynd sem heitir Asgard.
Við stefnum á Marseille á morgun, ef við vöknum þ.e.a.s. Við ætluðum í morgun en vöknuðum allt of seint, hálfþunn. Mér virðist sem við séum að fara að endurtaka leikinn aftur í kvöld. Allavega þá krókudílavodkinn og viskíið komið aftur á borðið.
Eftir helgi er það svo toulouse og Margit, svo Belgía. Gaman, gaman (svo lengi sem lestin mín springur ekki í loft upp...)

<< Home