"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, apríl 25, 2006

marjam Ó marjam - æ lof jú..!

Ég er komin í sumarskap sem þýðir bara eitt: ég er með óbilandi þörf fyrir að létta budduna mína. Mig langar að kaupa allt! Það virðist víst skipta mig litlu máli að ég hef ekki efni á því...
Í tilefni þess að sumarið kom í dag fór ég í smá lærdómspásu niður í miðbæ Reykjavíkur. Það var vægast sagt yndislegt, sól og blíða og vor í lofti... Ég fór í allar geisladiskabúðirnar til að athuga hvort að ég gæti keypt disk með hljómsveitinni Man man, er alveg ótrúlega heilluð af henni þessa dagana, en hún var hvergi til. Ég sat í rúman klukkutíma niðri í 12 Tónum að drekka kaffi og hlusta á alls konar tónlist. Endaði með þrjá undursamlega diska í höndunum: "the Teaches of Peaches" með Peaches, "Ease Down the Road" með Bonnie prince Billy og svo alveg geggjaðan disk með hljómsveit sem heitir Bondage Fairies, ótrúlega skemmtilegur gripur, ekkert meistarastykki en lætur mann brosa voða mikið... ég skilaði hinum 6 diskunum sem mig langaði í aftur í hilluna með trega...
Í tilefni dagsins þá keypti ég mér líka hnulla stór gellusólgleraugu og vá hvað mér leið eins og gellu þegar ég setti þau upp. Ég mætti heilu fótboltaliði á laugarveginum og ég get svo svarið fyrir að þeir blikkuðu mig allir...næstum því... verst að ég er ekkert mikið fyrir fótboltastráka.
ég náði stjórn á kaupþörfinni, hefði vel getað hugsað mér að versla fleiri geisladiska, vinylplötur eða föt... var komin á fremsta hlunn með að máta föt í Kron Kron... man oh man hvað ég elska þá búð!
ok. hætta blaðri. farað læra.

|