"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

laugardagur, apríl 08, 2006

Fyrir Uganda!

klukkan rúmlega 11 í kvöld var ég orðin ógeðslega þreytt. Klukkan er núna 5.38 og ég er ekki enn farin að sofa og það sem meira er - ég er ekki þreytt. Ég held samt að það sé e-ð plat. um leið og ég leggst upp í rúm mun ég finna fyrir þreytu. Spurningin er aftur á móti: hver segir að ég þurfi að leggjast upp í rúm? og afhverju ætti ég að vilja finna fyrir þreytu?

Ég ákvað áðan að leigja spólu, langaði að horfa á e-ð gott og vandað sjónvarpsefni. Mér varð á að leyfa Muggi, litla bró, að koma með. Endaði á því að horfa á Hollywood útgáfu af Sigurði Fáfnisbana... ég held að það segji sig sjálft. Ég náði þó á undraverðan hátt að horfa á myndina alla í gegn, Muggur aftur á móti sofnaði. Ég tók samt aðra mynd sem heitir Goodbye Lenin! Ég stefni að því lauma henni í tækið þegar enginn sér til á morgun. Ég hefði víst getað notað tækifærið núna, á meðan allir eru sofandi. Oh well...

Ég fór á magnaða tónleika í gær (eða ætti ég að segja fyrradag?). Aftan hópurinn stendur ávallt fyrir sínu... Jónsi hóf leikinn en hann er nýliði í hópnum. Svo á eftir komu Gugga&Halli (a.k.a. Abi) á svið og frá þeim sveif undurfagurt eyrnakonfekt. Þeirra beztu tónleikar hingað til, að mínu mati. Síðasta bandið var svo ofursveitin Mean Mr. Mustard. Þið sem mistuð af þessari snilld eru lúðar! Vá, þetta voru geggjaðir tónleikar. Salurinn hló, grét og gapti til skiptis. Mali, Mali, Mali!... Uganda, Uganda - Mali combala... (eða e-ð álíka). Ég fór sko í afrískan baráttuham eftir þetta undursamlega gigg.

|