"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, apríl 04, 2006

skúmmedískúbb!

jæja, búin í prófinu og veit ekkert hvernig mér gekk. Verð samt að viðurkenna að ég fæ alltaf svona skemmtilega spenning í magann þegar ég er að fara í próf. Ég var t.d. alveg ótrúlega spennt í morgun að vita hvernig spurningar myndu vera á prófinu því ég hef aldrei farið í stærðfræði-krossapróf áður. Mér fannst þetta skemmtilegt próf. Það þýðir samt ekki að mér hafi gengið vel. Þetta var svona pínu eins og að leysa talnaþraut eða gera krossgátu á tungumáli sem maður er ekkert sérstaklega góður í. Mjög skemmtilegt. Ég hef samt ákveðið að ég ætla að reyna að læra smá heima í tölfræðinni áður en ég fer í lokaprófið. Þótt að það sé gaman að reyna giska á rétt svör (svona pínu eins og þegar maður tekur þátt í lottó), þá er það ekki endilega jafn skemmtilegt þegar maður fær niðurstöðurnar úr prófunum (alveg eins og þegar maður situr spenntur fyrir framan skjáinn og vonar að maður hafi fengið kannski eins og einn bónusvinning en endar með skitnar tvær tölur réttar). Niðurstaðan: Tölfræði er ekkert svo leiðinleg. Það böggar mig bara að vera skyldug til að læra hana.

Planið í dag er: Reikna smá og jafnvel mæta í tíma. Tæma ískápinn minn í Reykjavíkinni og fara út í Garð. Redda passanum fyrir kanavöllinn. Keyra Óla á fótboltaleik. Baka köku fyrir Mugg. Svolítið húsmóðurslegur dagur enda er mamman okkar in da USA.

Planið á morgun er: Vinna - JEI!!! hlakka til að prófa nýju vinnuna mína!!!

Góðu fréttir dagsins: Ég þarf aldrei aftur að bera út fréttablaðið frekar en ég vil. Ég áttaði mig á því að ég er búin að vera blaðberi í u.þ.b. tvö ár. Það er yfirdrifið. Þetta var gaman en nú er komið nóg. ég er hætt - jei!

|