"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, apríl 27, 2006

sítróna og hunang

copy paste copy paste copy paste...

maður verður alltaf undarlegur þegar maður vakir alla nóttina yfir lærdóminum. Ég fór að hlusta á gleðilega og hressa tónlist á meðan ég skrifaði ritgerð, sem þýðir það að ég er búin að vera með hálfan hugann við lærdóminn, hinn helmingurinn hefur farið í það að einbeita mér að því að dilla mér. Mér finnst svefngalsi skemmtilegur...
Nú þarf ég að fara að lesa þessa blessuðu ritgerð yfir. Það hefr komið upp alveg hreint undarlegt vandmál við skrif þessarar ritgerðar - hún er of stutt hjá mér. Það hefur aldrei gerst áður. Það verður spennandi að sjá hvað það er nákvæmlega sem ég er búin að vera að skrifa í alla nótt. Þá kemur líka kannski í ljós afhverju ég hef ekki skrifað meira en raun er vitni. ´

Fyrst ætla ég samt að skella Man Man í heyrnatólin og stíga trylltan dans. Kannski ég stelist til að reykja... úúúú geðgt villt. ok, nei, ég held ég sleppi því.

|