"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, maí 05, 2006

gatatat!

ok, ég verð að viðurkenna að ég er ekkert sérlega dugleg.

ég er ekki byrjuð að læra, ég hélt samt alveg dúndur strandarpartý fyrir sjálfa mig inni í herberginu mínu áðan. Það var stuð þangað til að partýið varð að austur-evrópskri samkunndu með úlfum og tilheyrandi. Leið allt í einu asnalega á bikiníinu, veit ekki afhverju.

Tannburstaði mig.

Ristabrauð með smjöri og kakó í hadeigismorgunmat.

tölvast og nördast og þess háttar.

nú leiðist mér. nú ætla ég að fara að læra því að prófin nálgast óþægilega hratt. fyrst ætla ég að gá hvort ég geti ekki kíkt í kaffi í suðrinu...

|