Min skodun
Saklaust fólk er að láta lífið í Líbanon. Það er svo sem ekkert nýtt að fólk sé að deyja í heiminum en mér finnst eitthvað öfugsnúið og perversíft þegar tugir saklausra barna eru sprengd upp í loftið. Mynd af látnu barni í fangi björgunarmanns birtist í blöðunum og ég tárast, en aðeins einu tári. Íslendingar og aðrar þjóðir sjá þessa mynd og sumir eru slegnir, í eina sekúndu, aðrir flétta á næstu blaðsíðu. Víðsvegar úr heiminum heyrast þó raddir sem fordæma voðaverkin, fjöldamorðin, drápin eða hvað sem þessi fólska getur kallast. Íslensk stjórnvöld halda hins vegar áfram í sama farinu, límd við lærið á Bandaríkjastjórn. Í stað þess að taka afgerandi afstöðu og gagnrýna miskunnarlaus morð biðja þeir Ísraelsmenn kurteisislega um að hætta, eins og þetta sé að verða svona frekar vandræðalegt. Svar Bandaríkjamanna til heimsins er hins vegar; „Æj, æj. En óheppilegt“. Þetta eru stjórnvöld sem auglýsa sig sem sendiboðar friðar og mannréttinda í heiminum, baráttumála sem þeir berjast svo kröftuglega fyrir með skriðdreka og orustuflugvélar að vopni. Það er víst ekki sama hverjir drepa eða eru drepnir. Þetta er svo vandræðalegt fyrir þá að Condoleezza drífur sig heim í faðm Hvítu hallarinnar þegar hún fréttir af árásunum. Eins og einhver, sem horfir upp á besta vin sinn nauðga saklausri konu, snýr við henni bakinu og heldur þögull heim á leið. Sum vinabönd virðast vera órjúfanleg.
Þess vegna er ég feginn því að herinn er að fara af Fróni. Maður á ekki að láta vini sína komast upp með hvað sem er. Það er kominn tími til að við tökum sjálfstæðar ákvarðanir. Við verður að hætta að horfa í gegnum linsu annarra og taka upp fyrri ímynd sem friðsæl og sanngjörn þjóð. Þjóð sem er annt um eitthvað annað en sína eigin hagsmuni. Við erum búin að blóðmjólka Bandaríkjamenn nóg og þeir eru búnir að heilaþvo okkur nóg. Höldum vináttunni innan skynsamlegra marka. Höldum áfram.
Ég er satt ad segja búin að fá nóg af íslenskum stjórnvöldum. Ég er aðframkomin af þessu óbragði sem ég er búin að vera með upp í munninum á mér í langan tíma. Ég er komin að þeim tímapunkti að annað hvort læt ég ekki bjóða mér meira eða ég hreinlega gefst upp á sjálfri mér, skoðunum mínum og öllu í kringum mig. Afhverju hrópa íslensk stjórnvöld ekki út í heiminn og biðja um frið? Afhverju beitum við ekki kröftum okkar að því að stuðla að bættum heimi í staðinn fyrir að stuðla endalaust að bættum efnahagi okkar sjálfs? Efnahagi sem samanstendur að himinháum tölum sem enginn skilur, skuldum landsmanna og yfirborðskenndum flottræfilshátti. Öll þjóðin tekur þátt. Ég tek þátt með því að heimta meira og meira og hugsa um alla fínu hlutina sem mig langar í, alla framandi staðina sem mig langar að heimsækja. Í leiðini sný ég baki í „hina ófarsælu“, grey fólkinu sem er víst of heimskt til að vera ríkt. Ekki nógu þróað til að átta sig á og hafa tök á háum fjárhæðum. Við áttum okkur ekki á því að þetta eru einnig peningarnir þeirra sem við erum að spreða. Við trónum efst á pýramida og þau halda okkur uppi, svo við getum verið nær hinum dýrðlega efnahagsguði sem við dýrkum svo heitt.

<< Home