já ok.
Sleeper Cell er nýji uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn... Mjög góðir þættir þar á ferð.
Ég er svo einhleyp að ég horfi á the Notebook ein með hamborgaratilboðinu mínu. HahA! Yndislegt...
Ég er búin að vera horfa óvenjumikið á sjónvarpið upp á síðkastið. Skrítið því ég er ekkert svo hrifin af sjónvarpsglápi. Gott samt að vera löt stundum.
Var samt svaka dugleg í dag. Pískaði bræður mína til og fékk þá til að hjálpa mér að þrífa húsið okkar áður en mamma og pabbi kæmu heim úr helgarferðalagi. Pabbi gaf mér blóm, mamma gaf mér knús. Ég gaf strákunum snickersís og Muggur fékk líka pulsu. Halldór fór í bíó. Allir voða sáttir.
Annars er fólkið heima eitthvað byrjað að kvarta undan mér. Sumir meira að segja lýsa mér sem miskunnarlausum harðstjóra. Er bara orðin þreytt á að vera alltaf að útskýra fyrir bræðrum mínum að ég er ekki húshjálpin og að það sé ekkert sem geri það sjálfsagt að ég þrífi skítinn eftir þá. Meira að segja ma&pa finnst stundum pínu óþægilegt þegar ég byrja að skamma þau fyrir að ala börnin sín ekki betur upp. Þess vegna gaf pabbi minn mér svona Dog Tag-hálsmen um daginn. Á því stendur:"Little Miss Attitude". Óla bró fannst þetta drepfyndið. Man oh man, ég hlakka til að fara til Slóveníu.
Plan mitt í Slóveníu: Vera hip&kúl, vera tipsy, eiga alveg ótrúlega artý elskhuga (ft), lesa mannfræði, hanga á kaffihúsum og bara að þrífa skít eftir sjálfa mig.

<< Home