"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, september 17, 2006

jei jei jei!!!

Fegin að ég djammaði ekki í gær, glápti bara á vidjó og át yfir mig. Náði að horfa á 3 bíómyndir í röð sem er örugglega nálægt persónulegu meti. Er að hugsa um að glápa á eina í viðbót núna, tók nefnilega "Maria full of grace" á leigu í gær. Búin að langa að horfa á hana heillengi. Það er samt alveg helling sem ég ætti að veraað gera, t.d. þvo þvott, taka til í herbeginu mínu og bara svona almennt að gera mig tilbúna fyrir brottför á miðvikudaginn... Jamm, það styttist óðum í Slóveníuför. Geeeegt! Ef ég þekki mig rétt þá á ég samt örugglega eftir að bíða með allt fram á síðustu stundu. Það er allt í lagi, ég fúnkera best þannig. Ég má samt bara taka 23 kíló með mér, sem þýðir það að ég pakka náttúrlega bara öllum mest hip og kúl fötunum mínum í töskuna. Eða hvað? Á maður kannski að vera aðeins praktískari í hugsun?

|