"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, október 21, 2003

ég á afmæli í dag!

Já, helgin er búin og ég á afmæli í dag!!! jei jei jei... Í tilefni af því datt ég í það um helgina, drakk sorgum mínum og sýndi vinum og vandamönnum appelsínuhúð meðan ég gaulaði í kareokí. Það er ekki e-ð sem ég geri oft. Við Magni héldum s.s. upp á afmælin okkar s.l. laugardagskvöld. Mikið stuð mikið gaman og mikið drukkið - jamm - Linda var sko drukkin. Ég held að ég hafi ekki farið svona langt yfir strikið síðan á Halló Akureyri ´98 þegar ég arkaði um götur bæjarins með tveggja metra langan runna í eftirdragi. Ég man að það kvöld var ég líka búktalari fyrir búklausa Ken-dúkku (reyndar var bara hausinn eftir af dúkkunni). „Halló, ég heiti Ke-en“ var hætt að vera vinsæl setning þegar leið á kvöldið.
Þetta var með eindæmum skemmtilegt kvöld verð ég að segja (þ.e. afmæliskvöldið), ég verð að koma því á framfæri að Toni á Mamma Mía er gull af manni, þrátt fyrir það að hafa dæmt mér í óhag í keppninni. Ég ætla samt ekki að gefa bróður mínum mikið hrós. Ekki nóg með það að hann hafi dregið mig upp á svið sótölvaða til að syngja, valið í liðið mitt, valið dómnnefndina, rústað græjunni visvitað áður en ég fór upp á svið og hent nokkur hrundruð grömmum af salthnetum í mig, þá lét hann mig labba heim út í Garð! Svín!Nei,nei, segi svona. Mer finnst það reyndar frekar fyndið að þeir hafi svindlað í keppninni því þeir voru búnir að vinna þetta áður en hún hófst ;) Reyndar þá er það satt, ég labbaði heim - og skemmti mé bara konunglega. „Labba“ er reyndar ekki alveg rétt, ég ætti frekar að segja: dansaði, trítlaði, söng með heyrnatól á eyrunum (örugglega verr en í fyrrnefndri kareokikeppni) og þegar fór að síga í endan á ferðinni, sligaðist heim. Ég var orðin svöng eftir allt tjúttið og mig langaði í Pizzuafgangana sem biðu mín heima. Hananú

|