Japlið á mökkul
Þetta er búinn að vera frekar viðburðarlítill dagur. Það sem bar t.d af í dag var grænmetisborðið í Hagkaup í Smáralind. Fékk ferskar fíkjur sem er e-ð sem ég hef ekki fengið í ca. 2 ár, mér til ómældrar ánægju.
Ég fór s.s. með mömmu og litlu bræðrum mínum (sem eru næstum jafn stórir og ég) í Reykjavíkina í dag. Mamma var að keyra því ég var enn vel rauðvínslegin eftir djammið í gær ( s.s. ég og Jógí Pógí, aka Jórunn Pálma blindfullar að tjútta á Duus, helst samt ekki á dansgólfinu sjálfu – það er ekki jafn skemmtilegt...).
Mamma mín er ÓTRÚLEGA löglegur bílstjóri – hún vandar sig að keyra. Ég meina ég er líka frekar löglegur bílstjóri en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Samt fannst mér við næstum lenda í slysi svona 4. sinnum.
Ferðinni var s.s. heitið á kattasýningu í Kópavoginum. Ég hélt svona að við værum kannski að fara með köttinn okkar á sýninguna, fannst það svona vera pointið. Þið vitið, hún að hitta hina kettina, mingla, allt þetta. Nei,nei, VIÐ vorum að fara á kattasýningu, kötturinn var eftir heima. Þar með fór pointið...
Ég verð að taka það fram að ég er ekki mikið fyrir ketti, er meira svona hundamanneskja, reyndar dýrka ég hunda! Mér hefur eiginlega alltaf verið illa við ketti, að minnsta kosti ókunnuga ketti. T.d. var „oj!“, það fyrsta sem mér datt í hug þegar Guðmundur bróðir fékk Birtu kisuna okkar. Mér leist ekkert á blikuna. Núna nokkrum mánuðum seinna erum við bestu vinkonur og kúrum saman næstum allar nætur.
Eftir kattasýninguna var farið í Smáralindina. Ég var búin að lofa sjálfri mér að ég myndi ekkert versla mér í þessum mánuði. Ég myndi ekki eyða pening í neina vitleysu. Sparnaðurinn gengur ekkert allt of vel og ég stefni út eftir 3 mánuði! Ég réð samt ekki við mig, byrjaði svona smátt, keypti tvenna eyrnalokka sem voru svooo ódýrir. Fór svo að sækja bræður mína í Skífuna og Bamm! Dolfalin, kolfallin. Ég var ekki einu sinni með gjafakortið mitt, hefði getað notað það en nei, ég gat ekki beðið. Ekki það, ég er viss um að ég geti alveg notað það seinna. Endaði á því kaupa mér 5 geisladiska með: Edith Piaf, Mariu Callas, the Coral(nýjasti), Nikku Costa og einn jazz disk með ýmsum flytjendum. Fékk þá alla saman á rúman fimmþúsund kall, frekar vel sloppið, sko...; ) Er ekki búin að hlusta á þá alla, en þeir lofa góðu. Er búin að ákveða það að mitt markmið í lífinu (þessa stundina) er að geta sungið eins og Maria Callas – oh my DOD! Þvílíkt og annað eins! Ég hlusta ekki mikið á klassík, en alltaf verið samt frekar heilluð af óperusöng og þessi söngkona var hreint út sagt ótrúleg!
Jæja, kveð nú að sinni, ætla að fara að baða mig. maður verður víst að gera það annars lagið. Ég verð að segja að ég hlakka bara til að fara upp í rúm á eftir og sofa í hausinn minn. Góða nótt og munið; skrímsli eru bara til ef þið trúið á þau. Ef þið trúið ekki á þau þá geta þau ekki étið ykkur lifandi eða rifið ykkur á hol með tánöglunum sínum eða tekið úr ykkur lífsnauðsynleg líffæri, steikt þau á pönnu og búið til ommilettur úr þeim eða stungið úr ykkur augun með nasahárunum... Holy Switt! Ég held ég fari ekkert að sofa í kvöld. Af hverju geri ég þetta á hverju kvöldi? Afhverju þarf ég alltaf að vera að hræða sjálfa mig svona. Vond stelpa! Vond Stelpa! Nú ná skrímslin þér! Ertu ánægð núna, ha, HA? Ég þoli þig ekki!
Góða nótt krúttin mín!

<< Home