"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

laugardagur, nóvember 01, 2003

Draumaland er opið frá 02.00-13.00

Kunnið þið að ráða drauma???
Mig dreymdi nefnilega í nótt að vinur minn hefði boðið mér ásamt fleirum til Malasíu eftir að ég var búin í interrailinu. Við náttúrlega skelltum okkur öll saman. Fyrsti staðurinn sem við förum til, er einhver kofi við frumskógarmörk. Við leggjum í leiðangur frá kofanum og ferðin breytist í þvílíka vitleysu, alls konar skrítnir hlutir fara gerast. T.d er ein stelpan tekin og sett upp í hana einhvað prik og togað þannig að tennurnar á henni verða geðveikt framstæðar. Þá man ég ( í draumnum) að hafa séð viðtal við sjónvarpskonuna, þessa ljóshærðu sem er með Loga Bergmann, þar sem hún hefði lent í þessu líka og hún var með ógeðslegar tennur í viðtalinu.

Á meðan þá eru alls konar skrítin dýr að ráðast að okkur en samt er allt mjög bjart í skóginum. Þetta var ekki svona hræðilegur draumur heldur allur mjög einkennilegur. Svo kemur að skrítna hlutanum í draumnum: Við náum öll einhvern veginn að komast í kofann og ákveðum að fara úr landi sem fyrst. Við vorum bara búin að vera í Malasíu í nokkra klukkutíma og við vildum bara fara heim! Allir fara úr kofanum nema ég og þessi vinur minn og þá byrjar þessi rosalega ástarsena hjá mér og honum nema það að ég er allt í einu komin með svona rosalega framstæðar tennur og get ekkert kysst hann!

Eftir það fer draumurinn út í algjöra þvælu þar sem svört villidýr byrja að ráðast að okkur úr öllum áttum meðan hópurinn er að fara úr frumskóginum. Við komumst að því að þorpsbúarnir eru búnir að plana að gefa okkur dýrunum sem fórnargjöf. Á meðan á þessu stendur erum við í hópnum mikið að spá hvort við eigum ekki að gera kvikmynd úr þessari ferð. En í gegnum öll þessi læti get ég ekki hugsað um annað en það hvað mig langar mikið að sofa aftur hjá þessum vini mínum! Hvað merkir þetta eiginlega? Sérstaklega þetta með tennurnar?

|