farðað flón fíflaskapsins
Síðustu dagar hafa einkennst af einstakri fýlu og pirring af minni hálfu. Ég er búin að vera að pirra mig á öllu og öllum upp á síðkastið, geðvonskan er alveg að fara með mig. Því hef ég ákveðið að draga mig aðeins í hlé frá öllum samskiptum þangað til að þetta er búið að renna af mér. Vonandi verður það á morgun, þetta gengur oftast mjög fljótt yfir. Ekki reyna að spyrja heimskulegra spurninga eins og „hvað er að ergja þig litla snót?“ eða „hvað er að?“.. Það er ekkert að, maður getur bara ekki verið í góðu skapi alla daga.
Þess vegna tel ég það vera góð hugmynd að ég sé ekkert að tjá mig, áður en ég fer að ergja fólk sem ég vil ekki ergja og satt best að segja hef ég ekki áhuga á að ergja neinn... mjög djúpt Linda ;)
S.s. ég ætla að hafa það náðugt um helgina, reyna að ná þessari skítapest og fúla skapinu úr mér. Lesa allar bækurnar sem eru búnar að hlaðast upp hjá mér. Kannski taka til í herberginu mínu. Fara í hressandi göngutúra með ferðageislaspilarann minn. Kíkja kannski á hestanan mína...umm.... og það sem ég hlakka mest til: lesa bókatíðindin! Þetta er örugglega skemmtilegasti póstur sem ég fæ yfir árið (ef ekki eru talin upp póstkort frá vinum og vandamönnum). Ég ELSKA bókatíðindin! Um leið og ég er búin að lesa um allar bækurnar sem mér finnst áhugaverðar get ég farið að hlakka til jólanna... og ég Elska jólin líka!
Kannski ég baki líka bara um helgina...
Satt best að segja þá líður mér bara mun betur eftir að hugsa um þetta allt saman. Ég held mig samt við fyrri plön, ég þarf að hlaða batteríin...

<< Home