"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

kristinleg kistufræði

Komdu og skoðaðu í kistuna mína.
Kíktu í undirheiminn sem kallast ég.
Gramsaðu þar og rótaðu eins og þú vilt.
Kuklaðu og káfaðu og klóraðu í botninn þar til þú nennir ekki meir.
Rikktu upp lokinu og góndu, góndu á allt draslið sem fyrirfinnst þar.
Hlæðu og gerðu grín og virtu það að vettugi að það er sálin í mér sem þú ert að gramsa í... helvítis fíflið þitt

|