"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, apríl 04, 2004

og hvernig var svo?

Ég er komin heim...

ég verð að viðurkenna að ég hlakkaði ekkert svo mikið að koma aftur, fannst ég alveg geta ferðast aðeins meira. Ekki bætti um skák að það var ógeðslegt skítaveður hérna þegar ég lenti á föstugadskvöldinu. Ég var ekki sátt.

Mér líður þó strax betur núna, fermingin hjá Óla bróður var í gær og ég fékk kökur... og hitti fjölskylduna. Í dag fór ég svo í Göngutúr, gekk í rúma 2 klukkutíma meðfram fjörunni og í móanum og varð allt í einu glöð að vera komin heim. Ég veit samt ekki hvað það endist lengi...

ég vil þakka Öldu og Matta, Guggu, Liv önnu, Rósu Dögg og Pétri kærlega fyrir að hýsa mig í ferðalaginu, Takk takk takk!

Ég trúi ekki að þetta sé búið, mér finnst þetta hafa verið draumur, eins og þetta hafi ekki verið raunverulegt... kannski er ég klikkuð, kannski fór ég ekkert, kannski var þetta allt ímyndun eða kannski var ég í Kristianíu allan tímann eða kannski bara í meðferð á Vogi.... haha! plataði ykkur!

|