"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Eins og þið kannski vitið þá er ég að fara á svona Evrópuflakk í febrúar. Mér finnst reyndar alveg ótrúlegt að ég sé ekki búin að tala meira um það hér á blogginu mínu. Þetta er svona gróflega planið:

Noregur - Osló
Finnland - Turku, Espoo, Helsinki
Danmörk - Köben og nágrenni
Tékkland - Prag
Ungverjaland - Budapest
ítalía - Mílano
Frakkland - Arles, Montpellier, Toulouse
Belgía - Ninove
England - London, Brighton
Skotland - Edinborg, Aberdeen

Hlutir sem mig langar að gera í ferðinni fyrir utan að hitta fólk og vera túristi:

fara á tónleika hér og þar
fara í óperuhús í Tékklandi og/eða Ungverjalandi
kíkja jafnvel í leikhús í London
Hösla Matt Damon, hann er nebblega á Evrópuflakki næsta hálfa árið og nýhættur með kærustunni ;)

Jæja Brynja, þetta ætti að duga þér næstu daga...

|