Hvannanornin á Fíflabæ
„...Hún renndi sér hálfa leið niður brekkuna. Þetta var uppáhalds staðurinn hennar í sveitinni. Brekkan var þakin langri og fagurgrænni hvönn sem gaf frá sér kryddaðan ilm á sumrin. Amanda átti það til að brjóta parta af hvönninni og fylgjast með sniglunum sem höfu tekið sér bólfestu inni í stilkunum. Hún gat aldrei hætt að undrast hvernig þeir færu að því að komast inni í blómið. Hún sat stundum og velti þessu fyrir sér tímunum saman, horfði á þá hreyfa sig silalega, horfði á slímrákirnar sem mynduðust á eftir þeim. Þetta var hennar griðastaður, hennar eigið prinsessuríki.
Stundum fór hún alla leið niður að skurðinum sem rann þarna fram hjá. Henni fannst hann spennandi, sérstaklega eftir að móðir hennar hafði sagt henni að hann var kallaður Drekkingarhylur. Sýslumaður hafði áður fyrr búið á bænum og þar hafði fjöldi kvenna verið teknar af lífi fyrir galdra. Stundum þegar hún horfði á eftir skurðinum hríslast niður túnið, sogaðist hún í fortíðina og varð sjónarvottur að aftökunum. Hún sá konurnar, skítugar og í slitnum fötum, berjast um meðan þær voru færðar í átt að hylnum. Hún sá í andlit þeirra ofan í vatninu og hendur sem þrýstu þeim niður. Oft, á sólríkum degi heyrði hún hvísl sem barst með golunni. Hún vissi að þetta var nornahvísl og að það var hún sem hvíslaði það, úr fortíðinni.“

<< Home