góla jóla bólu skjól
Jæja elskurnar mínar þá er síminn á heimilinu kominn aftur í gang. Síðasti reikningur hljóðaði upp á 12 þús krónur og foreldrar mínir voru vægast sagt svekkt yfir því... hef því ekkert bloggað.
á morgun er dagur heilags þorláks, veit svo sem ekkert um kauða eða afhverju hann fékk einn mest busy dag ársins nefndan eftir sér. Ég er samt fegin því að búðirnar eru opnar fram eftir, ég er ekki alveg búin að öllu, ein jólagjöf og par af skóm eftir...
Annars er ég komin í jólafrí í nokkra daga mér til ómældrar ánægju, ég var ekki búin að fatta það að ég þyrfti ekki að vinna á aðfangadag, gamlárs- og nýjársdag eins og í fyrra. Ég kenni í brjósti um þrælana í Bláa Lóninu ;)
já það er kannski best að ég vari ykkur við og biðji ykkur afsökunar strax, ég er nefnilega ekki enn búin að ákveða hvort ég sendi nokkrum jólakort í ár. Ég ætlaði að byrja á þeim í kvöld, en ég lofa engu. Ég held ég sendi fólki frekar bara nýárskveðju á næstu dögum. Það kemur bara í ljós. Þið megið samt alveg senda mér kort sko, ;)
Þetta verður ekki meira í kvöld elskurnar mínar, ekki missa ykkur í jólastressi.

<< Home