"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, desember 08, 2003

lolo og lobo

...„hittu mig í furugrundinum!“ kallaði hann til hennar og hljóp í átt að óeirðunum. Hún stóð eftir í húsasundinu reið yfir því að hafa ekki sagt honum frá barninu sem hún gekk með. Hana langaði að hlaupa á eftir honum en hún vissi vel að þetta var ekki hennar barátta. Hávaðinn frá götunum í kring umlukti hana, hrópin í mótmælundum og viðvörunarskot hermannanna. Hún settist út í horn í skuggann, dró hnén að sér og hallaði andlitinu upp að veggnum. Það eina sem hún gat gert nú var að vernda ófætt barnið og vona að hún fengi að sjá Sergej sinn aftur“...



búhú, aumingja ég...
Holy Switt! ég er lasin, get ekki meir, farin að horfa á Monty python...

|