"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, janúar 05, 2004

Á brott frá klakanum

Jæja, þá er komin endanleg dagsetning á ferðina mína miklu!
Ég flýg út miðvikudaginn 4. febrúar til Osló. Interrail miðinn minn tekur svo gildi þann 8. febrúar. Þannig að ég eyði helginni í Noregi og fer svo yfir til Finnlands. Ekki samt örvænta, ég stefni á að koma heim mánaðarmótin mars/apríl.
Ég get sagt með fullri hreinskilni að ég hlakka alveg ótrúlega mikið til. Það versta er að ég get ekki keypt interrail miðann fyrr en 15. jan því að þá fæ ég vegabréfið mitt tilbaka frá sýslumanninum... það er svo erfitt að bíða. Mig langar að kaupa miðann - NÚNA!

Það er samt ótrúlegt stúss í kringum svona ferð, svona alls konar smotterí og vesen en það er bara hluti af stemmningunni.

Nú er bara að halda aftur að eyðsluþörfinni og bíða, bíða, bíða. Vá bara mánuður þangað til... ;)

Hey, já! Vill einhver kaupa af mér 7. vetra jarpa meri. Undan náttfaradóttur og Emma frá sperðli? Gullfalleg og skemmtileg. Ekki mikið tamin. (ég er ekki að grínast) :)

|