fífilbleik tún og fjósafætur!!!
Það er búið að leysa öll okkar vandamál með gamlárskvöld!!! Jíbbí jei jei jei!
Það er búið að setja á fast að hafa Rokkkvöld á Zetunni fyrir þá sem eru til í eitt heljarinnar partý og sukk. Hinir rómuðu sundlaugarverðir í hljómsveitinni Tommygun Preachers munu stíga á stokk og skemmta áhugasömum. Einnig munu Halli Valli og strákarnir ÆLA feitu pönki yfir áhorfendur.
Það hefur líka heyrst að dj rjúpa muni skemmta gestum.
Það kostar aðeins 1000 kall inn á þessa taumlausu gleði og mun peningurinn víst renna til styrktar viskísjóðs fátækra rokkara.
Handboltarokkarar eru ekki velkomnir...

<< Home