gling gló, klukkan sló, máninn ofar himnum hló
ég er dofin, algjörlega dofin mest allan tímann. ég á erfitt með að átta mig á því að þetta sé að skella á. Þessi ferð sem ég er búin að vera að plana í marga mánuði, ótrúlegt! Þessa dagana er ég dofin og löt, ég held þetta sé ómeðvitaður orkusparnaður. Stundum fæ ég svo algjört spennukast, þar sem ég ræð hreinlega ekki við mig, vill bara dansa og syngja af gleði! Þetta er bæði í senn, of stuttur og of langur tími þangað til - undarlegt...
Ég er komin með gróft plan fyrir fyrsta kvöldið, Pal Olav tekur á móti mér um kl 21 og þá ætlum við að fara heim til hans, elda jafnvel góðan mat (s.s. hann, ég kann ekki að elda), fá okkur smá vín og spila á gítar og tralla. Ekkert sukk samt sko, því hann þarf að fara í skólann næsta morgunn. Ég held ég fari og rölti bara um borgina á meðan hann er þar eða sofi út eða bara eitthvað.... ohh, þetta er allt orðið svo raunverulegt!
Eftir kvöldmatinn í kvöld er ég er búin að lofa sjálfri mér að borða ekki aftur bjúgur á næstunni, mér finnst þær ekkert vondar, ekkert spés heldur... það er bara að ég fæ alltaf þvílíka klígju þegar ég er búin að að því, enda er þetta ógeð með meiru!
uhmmm...hvað meira... já! Ég er að búa mig undir mikinn hasar þessa helgi því Halldór bróðir minn er heima með börnin sín tvö. Við vorum að reyna að hlusta á fréttirnar í kvöld en það var illmögullegt því það var verið að spila á hljómborð og mjög falskan gítar, hlusta á stígvélaða köttinn og tæta allan hreina þvottinn á gólfið með tilheyrandi skömmum og látum...
Þó að frændsystkyn mín séu yndisleg þá held ég verði fegin að komast út á miðvikudaginn. (hehe, er einmitt að hlusta á þau núna, Kristófer Árni er að skamma pabba sinn fyrir að kalla litlu systur kjánaprik... you don´t mess with my sister man!"...)

<< Home