Ah, bon?
Well, well, well, þá er allt að smella saman í sambandi við ferðina! Ég er búin að kaupa farmiðann og interrail miðana, úlpu, húfu og skó þannig að ég ætti að vera klár í slaginn, jibbí!!!
Ég flýg út miðvikudaginn 4. febrúar (18 dagar þangað til!!!) kl. 7.30 til Köben. Ég tek svo rútu þaðan til Osló og verð þá líklega komin þangað um kvöldið. Planið er að eyða helginni þar. Interrail miðinn minn tekur svo gildi sunnudaginn 8. febrúar og þá tek ég lest yfir til Finnlands...
Ég á bágt með að trúa því að þetta sé að skella á. Áður en ég veit af, verð ég komin upp í vél á vit ævintýranna...
Ég er að fara að fljúga í fyrsta skipti með iceland express, fyrir þá sem ekki vita það þá ér ég frekar flughrædd (og faratækjahrædd yfir höfuð) þannig að þetta verður áhugavert. Mér var ráðlagt að taka inn sjóveikistöflur og fá mér eins og einn öllara með, það á víst að vera mjög afslappandi. Ég get vel trúað því, en spurningin er sú hvort ég verði of sljó til að fatta að ná rútunni til Osló. En hey, lífið snýst um að velja og taka áhættu. Mér líst betur á að vera uppdópuð einhvers staðar í Köben heldur en að vera að farast úr hræðslu einhvers staðar í háloftunum...

<< Home