"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, janúar 23, 2004

glúkoxi og glaserín

Ég er Amanda Alexandra Pelt. Gjöf Guðs til heimsins, það hefur bara enginn fattað það ennþá. Þegar ég fæddist breyttist heimurinn í allri sinni mynd. Kannski ekki að öllu leiti en það var margt sem varð mun betra, a.m.k. munu hlutirnir verða betri þegar fólkið í heiminum áttar sig. Tíminn mun leyða það í ljós.
Ég fæddist fyrir 22 árum og 107 dögum eftir langa og erfiða nótt. Allir héldu að ég myndi ekki lifa fæðinguna af en svo allt í einu sá mamma mín bjartan loga leggjast yfir herbergið. Það var eins og hún fyndi fyrir ótrúlegri ró. Nokkrum mínútum seinna var ég komin í heiminn. Ég var að sögn lækninsins fallegasta barn sem hann hafði nokkru sinni séð. Móðir mín hélt því alltaf fram að Guð hefði sent henni engil. Hún kallaði mig alltaf engilinn sinn eftir það. Ég verð samt að viðurkenna að ég man samt ekki mikið eftir mömmu, hún dó þegar ég var 5 ára. Pabbi minn hefur sagt mér frá þessu öllu og ég trúi því alveg, það getur ekki verið annað en að ég hafi verið fallegasta og besta barn á jarðríki.
Ég var líka ofurgreind og hæfileikarík, t.d. eru til upptökur af mér þriggja ára þar sem ég er að þylja upp klausur úr stjórnarskránni. Mamma og pabbi voru líka alltaf að fara með mig í sjónvarpsþætti svo ég gæti sýnt öllum hversu gáfuð ég væri. Eftir að mamma dó þá hélt pabbi þessu ótrauður áfram. Ég kom fram í hverjum þættinum af fætur öðrum þar sem ég taldi upp allt frá risaeðluheitum til gengi hinna ýmsu gjaldmiðla miðað við dollarann. Líf mitt virtist fullkominn og eftir því sem leið þá virtist heimurinn vera að sýna mér þá athygli sem ég átti skilið. Svo skyndilega, á óskiljanlegan hátt, var þetta allt hrifsað frá mér. Ég kenni einni manneskju um, Darren Thomas. Fólk kallaði hann undrabarn, snilling með gott hjarta sem var tilbúinn að bjarga öllum heiminum. Á svipstundu hlotnaðist honum lífið sem var ætlað mér. Ég féll í skuggann og líf mitt var helvíti í Jörðu. Þetta er mín saga...


Kannski ég haldi áfram með þessa sögu einhvern tíma seinna, sé til. Ég hef hingað til ekki getað haldið mig við eitt efni lengur en í 10 mín. En hey, það er alltaf tími til að breytast og bæta sig...



e.s. 12 og dagar í brottför... víííí

|