"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

strandaglópur í Svíalandi

Jaeja heil og sael, eda bara hej do eda bara eitthvad... Aevintýrid heldur áfram, tetta er búid ad vera frekar undarlegur dagur. ég var mikid ad spá hvad ég aetti ad gera, hvort ég atti ad dvelja lengur í köben eda reyna ad komast til finlands. ég ákvad svo ad hoppa bara upp í naestu lest til stockholms og reyna ad koma mér til finlands tadan. stuttu ádur en ég fór í lestina heyri ég allt í einu kallad „Linda!“ ég hélt ég vaeri ordin endanlega gedveik, byrjud ad heyra raddir á ödrum degi ferdarinna. Heyrru, tá standa tarna 2 stelpur úr Gardinum - Elisa og Helga. Madur er alltaf ad hitta fólk sem m. tekkir og alltaf segir madur tad sama; gvud hvad heimurinn er lítill... en vitid tid hvad tad er búin ad koma finna staerdfraediformúlu sem sannar ad tad er ekkert athugavert vid tetta. Tad virdist bara vera edlilegt ad hitta mann sem tekkir jón jónsson sem er bródir hennar mömmu eda e-d álíka....

Allavega tå spjalladi ég adeins vid stelpurnar og hljóp svo upp í lest til Malmö, tar åtti ég svo ad skipta um lest og fara til Stockhólms. (Mér fannst alveg magnad ad tad tók mig bara nokkrar mínútur ad fara á milli landanna) Heyrru svo kem ég til malmö, stíg út úr lestinni og fae alveg svaka ótaegilega tilfinningu í magann, tad var eiginega engin lestarstöd tarna heldur bara hálfgert rútuskýli. ég lít á skjáinn og sé hvergi skrifad lest til SH. Hleyp upp ad einhverjum pylsubar og spyr kallinn tar út í tetta: heyrru, tå hafdi ég farid úr lestinni of snemma og turfti ad bída í 10 mín eftir naestu lest til malmö. Audvitad vars svo seinkunn á henni sem vard til tess ad ég missti af lestinni til stockhólms - fucking shit!!! ég var búin ad panta saeti í henni og allt! Ég turfti ad bída í klukkutíma eftir naestu lest og tad vard til tess ad ég missti líka af naeturlestinni til Finlands - Kom adeins of seint. ég fór strax í símaskrána og á netid ad leita af hostelum en allt uppbókad - í febrúar!!! einu sem voru laus voru 100 dollara hótel og tad er budgetind mitt fyrir ca. viku ( eda ég reyni tad...)

Alla vega tá si ég núna á lestarstödinni í stockhólmi og velti tví hvad ég á ad gera vid sjálfa mig. Stödin er lokud á milli 24 og 3.30 tannig ad ég er ad hugsa um ad skreppa á naesta bar og fá mér einn öllara eda svo. Fann nokkra tónleika á netinu en ekkert kort tannig ad ég hef ekki hugmynd um tad hvar klúbbarnir eru, en hey!

Planid er svo ad reyna ad komast til Turku í finlandi í fyrrmálid. Ég hlakka alveg rosalega mikid ad hitta stelpurnar tar en Reettakaisa aetlar ad taka á móti mér tegar ég kem, jibbí!!!

Ég kved ad sinni elskurnar mínar, sjáumst í Finlandi, góda nótt!

|