Maladict er nýja uppáhaldssögupersónan mín...
Undur og huldufólk gerast!!! ég er að blogga... eða svona næstum því...
Það gerðist eithvað þegar ég kom heim, fyrir utan það að ég fór að vinna aftur í fiski og sem sjálfboðaliði við að bera út blöð.
- Ég varð hreinlega svo löt að ég nenni ekki að blogga. Ég nenni ekki að segja neitt ef ég hef ekkert að segja. samt held ég áfram að blaðra. Hvað er að manni? Er þetta ávanabindandi? Anskotinn hafi það! This is shitfuck!
Ég held ég sé bara líka að fyllast af bómull, ég er eitthvað svo dofin. Kannski vegna þess að ég er algjörlega búin að missa álit mitt og trú á fólkinu í heiminum og hérna heima við. Helvítis fávitar! Annað hvort finnst mér fólk grenja allt of mikið eða gera andskotan ekki neitt í málunum! Af hverju erum við ekki búin að marsera að stjórnarráðinu og HEIMTA að við hættum að sleikja rassgatið á bandríkjunum? Lifum við í loftbólu og höldum virkilega að ekkert geti skaðað okkur. Hvað varð um þjóðarstoltið og sjálfstæðið sem við höfum barist fyrir? Hvenær hætti hugur fólksins að skipta máli? eða það sem verra er, hefur hugur okkar aldrei skipt neinu máli. Kjósum við okkur konung og flokk af hirðfíflum á 4ja ára fresti?...
æi, það eru 19 mín. eftir af degi bókarinnar. Ég ætla að fara og eyða þeim tíma í að lesa Terry Pratchett því hann er eini maðurinn með viti sem ég veit um.

<< Home