Zorro, en garde!
Jæja, það eru að koma páskar sem þýðir aðeins eitt: Fjölskyldan tæmdi ísskápinn og fór upp í bústað. Ég fór hreinlega í massa vont skap þegar ég vaknaði í gærmorgun og opnaði ísskápinn - EKKERT! jú hellingur af þeyttum gervirjóma, 2 litrar af mjólk og blaðlaukur. Ég settist niður í sófann í sjokki og horfði bara á foreldra mína, þeir virtust ekkert vera að fatta það að ég væri ekki sátt. Heyrru! Ekki skánaði þetta svo, þegar allur matur var kominn í cooler og út í bíl fóru þau og tæmdu áfengisskápinn líka! Fokking fokk shit segi ég nú bara! „taktu bara úr frystinum Linda mín“... - mamma ég kann ekki að elda... „er ekki kominn tími til þess að þú lærir það þá? - jú ég ætti kannski að eyða páskafríinu mínu í það, ha ha HA!
Ekki misskilja mig, mér fannst frábært að þau skildu vera a ð fara upp í bústað, langaði eiginlega svoldið með þeim en ég er á túr og mér finnst það ekki heillandi hugsun að vera að pissa blóði út í skógi (blóði út í skógi... ljómar svoldið vel saman)... Málið er að þetta leit bara allt svo vel út á fimmtudaginn, allt troðfullt af mat, kjúklingaleggir, skinku- og kartöflusalat, álegg, pulsur og bara allt saman og ég ekkert smá ánægð. Ég ætlaði sko heldur betur að hafa það nice um páskana, en nei, ekki alveg. Þetta hefði líka verið allt í lagi ef það hefði ekki verið föstudagurinn langi og ég bíllaus, þá hefði ég getað farið og keypt mér eitthvað með blaðlauknum eða gervirjómanum... En jæja, ég fékk þó a.m.k. páskaegg frá þeim, mig langar svoldið að éta það núna...
jamm og b.t.w.þá er ég með þynnku dauðans! Hélt ég myndi ekki lifa morguninn af, náði sem betur fer að sofna aftur þannig að mér líður betur. Ég er að hugsa um að fara að horfa á tónleikadisk með Jeff Buckley og fara að hugsa um það hvort ég ætti að taka til.... hehe sjénsinn.
Já og fyrir ykkur sem ekki vita það, þá á Óli bróðir afmæli í dag, til hamingju kallinn minn (þótt þú lesir ekki bloggið mitt...)
* hefur einhver ykkar einhvern tíma spáð í því afhverju við höldum upp á krossfestingu Krists með því að borða súkklaðiegg? Hver er eiginlega tengingin?

<< Home