"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

laugardagur, maí 15, 2004

Warmhalte - Terrine

Jamm, partý hjá Aðlinum í kvöld... var sagt í gær að allt stefndi í ælandi fjör því fólk ætlar víst að detta all svakalega í það...

Eurovision (sem hefur alveg ótrúlegt skemmtanagildi), er næg ástæða til að detta í það. Reyndar er inngróin tánögl næg ástæða fyrir mig líka... Fólkið í vinnunni vilja halda því fram að ég drekki mikið. Það er ekki satt! bara stundum...

ég verð því að fara að leggja mig svo ég verði hress á eftir. Það er erfitt að vera blaðberi og fiskvinnslukona. Ég kann það bara ekki(þ.e. að leggja mig), annað hvort vaki ég bara eða fer AÐ SOFA. Ekkert þar inni á milli. Ég skil ekki fólk sem getur leggst upp í rúm, sofnað um leið og vaknað svo aftur eftir klukkutíma. Það tekur mig klukkutíma að sofna! jæja... s.s. ef ég er ekki komin í partýið kl. 22 þá er ég enn sofandi og þið megið vinsamlegast hringja í mig og vekja mig. Takk.

|