alheimsorkan og ég
jæja, dofinn er að fara úr mér, lífið heldur áfram. Ég hef eytt síðustu viku í faðmi minna yndislegu vina og fjölskyldunnar. Við stelpurnar erum búnar að hlægja og gráta saman. Höfðum myndakvöld síðasta miðvikudag þar sem við komum allar með myndir af Jórunni, rifjuðum upp gamlar stundir úr Garðinum og töluðum um börnin okkar... jamm mér leið pínu eins og ég væri fertug. En allt voða ljúfsárt...
Um helgina ákváð ég að skella mér ásamt úber æðislegu fólki á Melbæ í Kjós þar sem hin árlega Melbæjarskelda er alltaf haldin. Við s.s fórum þarna nokkur saman, drukkum bjór, kveiktum varðeld, hlustuðum á tónlist og fórum á trúnó, algjört æðipæði. Gleymdi reyndar að vaða ánna, ég bæti úr því næst...
Jamm, ég var ekkert í geðveiku skapi til að tala um Hróaskeldu í síðustu viku þannig að það er löngu kominn tími á það. Er maður ekki alltaf skyldugur til að segja hvað stóð upp úr og svolleiðis?
Skeldan var s.s. alveg æðisleg þrátt fyrir rigningu og áföll sem dundu á hópnum. Drullan náði mér upp á bak og öll fötin mín voru blaut en það styrkti mig aðeins sem rokkara. Útaf þessu skítaveðri þá eyddi ég næstum allri helginni á tónleikasvæðinu að sötra bjór og hlusta á tónlist. Undantekningin á þessu er þó föstudagurinn þegar ég kom blindfull heim á hádegi með sænskan homma í eftirdragi. Hafði verið að djamma með Halla Valla og alls konar skrautlegu liði alla nóttina (eins og t.d. Uve sem týndi tjaldinu sínu, vinum og farangri í 2 daga og fór bara á fillerí, fínn gaur sko). Ég þurfti reyndar að fylgja Halla heim fyrr um morguninn því fólk var byrjað að stofna til veðmála um það hvort hann myndi detta í drulluna eða ekki... Ég s.s. sofnaði á hádegi, vaknaði 4 tímum seinna og byrjaði að sötra. ég var aftur orðin drukkin eftir 3 bjóra... Endaði svo ein á Pixies og missti af þeim tónleikum þrátt fyrir að hafa verið á þeim (já ég var á perunni!) Ákvað þess vegna bara að fara að hitta Norska Gaurinn og halda áfram að djamma með honum og co.
Ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur, það voru svo margar hljómsveitir sem stóðu upp úr... Tim Cristensen var yndislegur! Vá, mig langaði bara að gráta af gleði þegar ég sá hann. Blonde Redhead, sissor sisters, morrisey, Franz Ferdinant, slipknot og muse fá öll topp einkun hjá mér fyrir tónleikana sína. Ekki má heldur gleyma ofurtussunum í Sahara hotnights (jeah beibí!) og yndislegu bresku kántrý gaurunum í simple kid.
Jamm Skeldan svíkur engan, annars þá er ég að hugsa um að prófa eitthvað nýtt og skella mér á ATP Festival á næsta ári. Var nefnilega að heyra geggjaðan orðróm um það að Bonnie Prince Billy ætti að vera næsti host á þeirri hátíð. Svo reyndist það bara vera enn eitt platið hjá Rósu Maríu. En maður veit aldrei, ef ég panta það þá rætist úr því. Maður veit líka aldrei nema maður skelli sér bara aftur á Skelduna að ári, en bara ef það verður sól...

<< Home