"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, júní 07, 2004

bítuköngurlær og silungar

Liðin er yndisleg helgi þar sem ég endurupplifði æsku mína, móður minni til mikillar mæðu. Ég ákvað að ganga meðfram Brókarvatni til að athuga hvort ég sæi ekki einhvern fisk í því. Þegar ég var komin dálítinn veg sá ég hvar Guðmundur Jökull bróðir var á stuttbuxunum einum fata að vaða í læknum. Áður en ég vissi af var ég komin á nærbuxurnar klædd þó flíspeysu og húfu og var að vaða mýrardrulluna með honum. Þegar móðir okkar bar að garði vorum við þarna berleggjuð að mana hvort annað upp í að hoppa yfir lækinn. Hún sendi mér vonbrigðisaugnaráð eins og henni einni er lagið og benti mér vinsamlegast á að fötin mín lægju hinum megin við lækinn, svona ef ég hefði ekki tekið eftir því. Hún hafði þá verið að leita að litla bróður í dágóðan tíma og var farin að halda að hann hefði farið sér að voða. Ég held hún hafi ætlast til þess að ég hefði vit fyrir barninu og kæmi með það heim að bústaðnum...

|