darrrrramm!
Vá Vá Vá! Bara ein/nn í einu, ekki missa ykkur í commentunum!
Annars er mér alveg sama því ég er að fara á Skelduna! Jibbí!!! Er einmitt búin að vera að kíkja á listann og hlusta á hljómsveitirnar, ég er enn í b-nöfnunum. Þetta er svo mikið af böndum mar. Svo finnst mér líka svaka spannandi hvað ég þekki lítð af hljómsveitunum. Mér líður eins og ég sé að spila í lottói því maður veit aldrei hvað maður dettur nið´rá. Kannski ég bara uppgötvi uppáhaldshljómsveitina mína í ár á hátíðinni. jei jei jei - gaman gaman! ég er a.m.k. búin að ákveða að vera ógó dugleg að fara á tónleika í ár, til þess er leikurinn gerður. Kannski á maður ekki að vera að lofa neinu um neitt en það er alla vega planið. Ég veit samt um marga sem ætla aðallega að djamma og djúsa í ár. Ég ætla náttúrlega líka að taka þátt í því, en ekki hvað?...
Er einmitt að hlusta á hljómsveit sem heitir Bergman Rock, einhverjir gamklir naglar frá svíþjóð. Verð á tjékka á þeim...
fjandans talva! helvítið er við það að æla á mig út af álaginu. verð að fá mér ADSL...

<< Home