"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, júní 23, 2004

cramps and crappedícrap

Jamm og jæja... þá ert allt að púslast fyrir Skelduna. Djöfulsins fokking brjálæði, þvílíkt mikið að góðum hljómsveitum maður! Var líka að kaupa mér nýtt tjald áðan á ekkert svo mikinn pening. Blöskraði samt aðeins þegar ég setti það upp- það er svoldið stórt sko, ekkert geðveikt samt. Ég er bara svo vön pínupínulitla 1-2 manna tjaldinu mínu sem er allt slitið og byrjað að leka. Það væri kannski bara rokk að vera aftur í því ef það væri ekki fjólublátt. Jamm... það verður s.s. að vera ein allsherjar helvítis orgía í tjaldinu svo mér verði ekki kalt.

jamm, bla bla bla... ég hugsa um lítið annað en hróaskeldu þessa dagana. Ég er samt að fara að byrja í hljómsveit, um leið og ég er búin að læra á hljóðfæri... en spennandi!

|