beðið eftir hollráðum
jæja jæja jæja gott fólk...
ég er að verða brjáluð á sjálfri mér. Get ekkert ákveðið, er alltaf að fá nýjar hugmyndir í kollinn. Var alveg búin að ákveða að fara í háskólann í mannfræði og ritlist ekki núna heldur næsta haust. Mig langar geðveikt að ferðast en mig langar líka geðveikt að eiga svoldinn pening þegar ég fer í skólann svo ég þurfi ekki að taka mér yfirdrátt fyrsta árið. Fara svo í skiptinám og masterinn út og ná þannig að fara til útlandanna...
Svo fékk ég enn eina fluguna í hausinn (fluguna í hausinn, finnst engum öðrum skrítið/skrýtið að segja það...?). Mér fannst allt í einu mjög góð hugmynd að fara bara til Parísar í ca. eitt ár og undirbúa mig til þess að taka Delf/dalf prófið sem veitir manni inngöngu í háskólanám í frakklandi. Þanng myndi ég ná örugglega fullum tökum á tungumálinu sem er eitthvað sem mig langar geðveikt að gera. Ég gæti auðvitað farið í skiptinám til Frakklands en ég er bara ekki nógu góð í frönsku til að læra mannfræði og mig langar að vita hvað ég er að læra um víst ég er að mennta mig á annað borð (á annað borð?!?!?)
Aðrar hugmyndir sem ég hef fengið eru:
Að fara í garðyrkjuskólann í hveragerði
að læra skartgripahönnun á ítalíu
að fara í heimsreisu
að fara út sem sjálfboðaliði
að fara út sem farandsverkamaður
djís, ég hlýt að vera margklofinn persónuleiki...

<< Home