"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Kraftkleber

Jæja, þá er verslunarmannahelgin búin með tilheyrandi filleríi. Ég held ég verði að fara að viðurkenna að ég sé orðin gömul því strax á föstudagskvöldið var ég búin að fá ógeð á áfengi. Ég lét mig samt hafa það og drakk 3 kvöld í röð, geðeikt duglegT Atburðir helgarinnar eru að mestu óljósir eða renna saman í eitt en þó get ég sagt ykkur að þessi helgi gæti bara orðið til þess að ég geri mér ferð upp á Langjökull á næstunni... kannski ekki... bara ef ég nenni... sé til... hehehehe

Annað í fréttum: Fjölskyldan mín er komin heim eftir langa dvöl í Borgarfirðinum. Best er þó að sjá hann Óla bróður minn aftur því hann er búinn að vera reynslubóndi að Leirulækjaseli í rúman mánuð. Hann og Guðmundur Jökull stóðu berir að ofan út í glugga þegar ég kom heim í nótt og börðu hvorn annað í hausinn
- Oh, hvað fjölskyldukærleikurinn er sterkur!

Annars er það líka í fréttum að ég og Guðmundur Jökull höldum að kötturinn okkar sé geimvera. Hún virðist skilja ALLT sem við segjum, fer í fýlu ef það er gert grín að henni, heilsar manni, drekkur kalt kaffi með mjólk, heimtar að fá að sofa í rúminu mínu, á koddanum mínum og er meira að segja svo frökk að hún nær stundum í mig þegar HÚN er tilbúin til að fara að kúra. Svo má ekki gleyma augnaráðinu... stundum horfir hún bara á mann mínútum saman og það er eins og að hún sé að skanna mann, eins og hún VITI... en hún er samt sæt... og mér findist bara kúl að eiga geimveru, svona eins og Drew Barrymore og E.T.


|