"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

englar og hundaskítur

Ég held ég hafi átt yndislegasta dag ferdarinnar hingad til í gær. Málid er ad ádur en ég fór voru margir sem søgdu mér ad tetta vaeri svo ekta ég ad fara svona ein tví ég ætti svo audvelt med ad kynnast fólki. Ég náttúrlega trúdi tví bara. Heyrru, svo á sunnudaginn var ég farin ad efast mikid um tetta tví ég hafdi enn ekki kynnst neinu nýju fólki. Jú ég nátúrlega hitti eitthvad vinum teirra sem ég var ad heimsækja en ég var ekkert búin ad kynnast neinum ødrum ferdaløngum, tid skiljid. Ég var búin ad missa alla trú á samskiptahæfileikum mínum tegar ég settist nidur til ad lesa the two towers á sunnudagskvøld. Ádur en ég vissi var ég komin í hrókasamrædur vid tvo adra túrista og vid kjøftudum saman fram á nótt! Fyndid hvernig allt getur breyst á augabliki. Tetta voru ekkert smá fínir strákar. Einn frá chicago, heitir Chris og er ad læra arkitektúr í Versølum! Viljid tid spá! Skólinn hann er í einu af gømlu útihúsunum sem tilheyra høllinni, gedveikt! Hinn heitir Toby og kemur frá Hanover í Týskalandi, er listamadur og athafnamadur med meiru, er alltaf ad sjá um svona altjodlega ungdómssamkomur (veit ekki hvad tad heitir á íslensku...). Svona samstarf milli margra tjoda tar sem folki er skipt nidur í vinnuhópa: tónlist, myndlist, leiklist og býr til listaverk med pólítísku ívafi. Gedveikt spennandi. Alla vega tá skemmtum okkur ekkert smá vel saman, eyddum´øllum gærdeginum saman, í tad ad skoda køben, løbbudum um allt Nørrebrø og ég veit ekki hvad og hvad. Fórum svo á "all you can eat" pizzastad og átum á okkur gat. Toby típískur tjódverji, fannst tad rosalega gód hugmynd ef ad chris myndi bara kaupa sér á hladbordid og svo myndi hann bara fá ad borda hjá honum, hehe. Okkur fannst tetta ekki alveg eins gód hugmynd, ég held ad tjónunum hefdi ekki fundist tad heldur...

En tad er svo ótrúlegt hvad fólk getur haft mikil áhrif á mann. Ég tók eftir tví í gær ad ég er algjør letihnodri og hvad tessir gaurar gerdu mér gott. Teir voru svo aktívir, sérstaklega Toby. Tad var eins og ad fá gledisprautu tegar madur var í kringum hann. Vid bókstaflega hlupum í allan gærdag, reyndum ad skoda sem mest vid gátum tví tetta var sídasti dagurinn okkar. ég var kófsveitt og brosandi út ad eyrum tegar ég kvaddi tá á lestarstødinni.

Eftir tad tá fór ég á kaffihús (ekta ég) las smá og reykti. Fór í eina búd og keypti mér gedveika myndavél, svona colorsplash vél. Tá er hægt ad skiptu um liti á flassinu og tannig leika sér med litina á bakgrunninum og fólkin og øllu, ekkert smá skemmtilegt. Kostadi bara 400 danskar, bara billegt sko. ég er enn ad reyna ad komast í gegn um handbókina samt.

Ég hitti svo Ninu um kvøldid, hún býr adeins fyrir utan køben. Fórum á kaffihús og spjølludum, mjøg gaman. Tad var samt einhver kelling sem kom upp ad okkur og bad okkur um ad tala lægra tví hún væri ad lesa. Hún byrjadi ad tala um ad hún væri ad lesa um forsetakosningarnar í mínu landi, heyrru, tá hélt hún ad ég væri Kani! viljid tid spá! Ekki hrós tad sko....

Kvøldid tók ég svo lestina til Bramming (rétt fyrir utan Esbjerg), til Afa míns en hann býr hér í Danmørku ásamt konu sinni og børnum. Tetta er í fyrsta skiptid sem ég heimsækji tau tannig ad tad er ædislegt ad koma hingad. Tau eiga yndislega sætt músteinshús med fallegum gardi og tilheyrandi, allt voda kósý. Ég ætla ad vera hér tangad til á morgun en tá tek ég lest yfir til týskalands. Toby var búin d bjóda mér til sín til Hanover, veit ekki hvort ég thiggji tad. Ég ætla a.m.k. ad fara til Berlin og Paderborn ad hitta stelpu sem heitir Franzy. Jæja, ætla ad far ad spjalla vid fólkid mitt hér. Madur má víst ekki missa sig á netinu ;)

Hafid tad gott elskurnar, læt heyra aftur í mér brádum!

|