"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

seigd´ekki kannski segdu frekar nei nei og aldrei

Ég átti mjög dapra stund ádan. Mér fannst ég allt í einu vera ein í heiminum og vard hugsad til fyrrum félaga míns. Hann var svartur Labrador og hét Mökkur. Ég hef ekki saknad hans lengi tó svo ad fyrstu mánudina eftir ad honum var lógad gat ég varla horft á mynd af honum án tess ad tárast. Ég nefnilega sá alveg eins hund í tollinum í morgun, gullfallegan svartan labrador dillandi skottinu sínu. Fyrst horfi ég á hann og vard alveg rosalega glöd, langadi til ad klappa honum en vissi ad ég mátti tad ekki tví hann var ad tefa af ferdalöngum. Svo um leid og ég kom á lestarstödina og allt fór úr skordum tá helltust minningarnar yfir mig. Hann var nefnilega eina veran í tessum heimi sem var 100%, eina veran sem ég gat treyst. Tad versta er ad ég held ég hafi aldrei sagt honum tad. Samt kom hann alltaf gladur til mín um leid og ég steig inn um dyrnar heima, ég sagdi honum honum hluti sem ég hef engum ödrum sagt og ég veit ad hann tók öll mín leyndarmál med sér í gröfina.

Málid er ad tegar ég kom á lestarstödina hringdi ég í Pål Olav en tad var slökkt á símanum hans. Ég aetladi ad taka lestina svo til hans. 2 tímum seinna var enntá slökkt á símanum og tad er tann enn medan ég skrifa tessi ord. Skrýtid hvad tad tarf stundum lítlid til ad raska öllu. Vandamálid er ad ég á ad hitta Ninu í Köben tann 15 tví hún kemur tá frá Paris og ég veit eiginlega ekki hvad ég á ad gera vid sjálfa mig tangad til. Jú, jú, mér dettur náttúrlega ymislegt í hug: Fara í bíó, á kaffihús, á söfn og allt tad, enda er vandamálid ekki endilega hvad á ad gera heldur hvar madur á ad gista. Ég eyddi klukkutíma á netinu ad leita ad hótelum í Stockhólmi og Osló en tad var ekkert laust, nema fyrir 7000 kall og meira. Tetta eru lítil vandamál, ég veit, en á tessum tímapunkti fannst mér tetta mikid, naestum yfirtyrmandi...

...tangad til ég hringdi í stelpuna í himnaríki, á augnabliki hvarf allur leidinn og efinn. Hún sagdi mér bara ad fara og fá mér bjór og sígó (kannski ekki alveg en ég gerdi tad samt), ad hún myndi redda tessu öllu fyrir mig. ég gekk frá símaklefanum brosandi og full af orku. Tad eina sem böggar mig núna er ad ég fékk ekki pláss vid hlidina á saeta straknum á internetkaffihúsinu.

Linda tott er komin aftur, djöfull er leidinlegt ad vera í vondu skapi... aldrei, aldrei aftur!

|