svartnæturálfurinn, uhm...ég
Hæ øllsømul! ég er Í køben núna. Byst vid ad herja á meginlandid annad hvort á morgun eda hinn. Noregur var mjøg fínn. Fór og skodadi mig adeins um. Kíkti á viegelandsparken (man ekki alveg hvernig tad er skrifad...) ekkert smá fallegt tar, hellingur af skúlptúrum og trjám. Pål eldadi spagettí handa okkur og svo vorum vid bara ad nørdast heima hjá honum. Hann er enn veikur greyid. Hlustudum á og spiludum tónlist og horfum á sjónvarpid, bara rólegt føstudagskvøld.
Ég tók svo lestina til Køben í dag, fór eiginlega strax á tónleika tegar ég kom hingad. Á stad sem heitir stengade 30 ( sami stadurinn og ég og halli valli reyndum ad fara ad sjá Tomahawk í sumar, en tad var uppselt tá). Tad voru 2 hljómsveitir ad spila núna, geveikt gaman. Sú fyrsta heitir eine kleine deutsche, sænsk pønk/rokk grúppa, mjøg skemmtileg. Hin heitir the Magic Bullet Theory. gedveikt gód blús/rokk grúppa, ekkert smá gódir spilarar, trommarinn magnadur og GEIDVEIKT sætur!
Mér finnst tessi hjólamenning hér í Danmørku ekkert smá ædisleg, allir ad hjóla, fara meira ad segja á tónleika á hjólunum sínum, merkilegt.
Jæjam frekar andlaus núna, kved í bili elskurnar mínar, bid ad heilsa heim!

<< Home