"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

laugardagur, febrúar 07, 2004

Terveisiä Turusta

Jaeja öllsömul, tá er ég komin til Finlands. Sídast tegar ég skildi vid ykkur tá var ég á lestarstödinni í Stockhólmi, ég sem sagt fékk mér smá göngu eftir ad henni hafdi verid lokad kl 24.00. Tad var slatti af fólki nidrí bae tannig ad tetta var bara gaman. ég fór svo inn á einhvern belgískan bar, settist tar nidur og fékk mér bjór. Sem betur fer var bladarekki tar tannig ad ég gluggadi í helling af húsgagnablödum á medan ég beid tarna. Tegar ég ákvad svo ad hipja mig aftur á lestarstödina kl. 3.30 tá tók ég eftir tví ad ég var ein eftir á barnum, fólkid var bara ad ganga frá í rólegheitum. Ég hálfskammadist mín tannig ad ég ákvad ad hjálpa til og tók glösin og tad af bordinu og setti á bakka... eftir tetta ákvad ég ad fara og fá mér ad borda, var ordin alveg hreint rosalega svöng, hafdi ekkert étid sídan í hádeginu deginum ádur. Fór inn í 7-11 búd og keypti mér núdlur sem voru óaetar, ég reyndi mitt besta en ég bara kom teim ekki nidur tví taer voru svo ógedslegar...

Ég keyti mér svo mida á bátinn til Turku á lestarstödinni en turfti ad bída til 7.30. reyndi ad leggja mig en öryggisvördurinn kom og bad mig vinsamlegast ad setjast upp, mig langadi ad sparka í sköflunginn á honum, en hann var bara búinn ad vera svo naes vid nig ad ég hafdi mig ekki til tess. Tegar ég loks fór upp í bátin var ég búin ad bida í hálfan sólarhring og ég var ordin svo treytt og skítug ad ég hljóp strax nidur í herbergid mitt um leid og ég kom um bord, fór í sturtu og ad sofa. Ég vaknadi í svona hálftíma, fór upp fékk mér ad borda og svo aftur nidur ad sofa.

Rettakaisa kom svo og tók á móti mér, tad var yndislegt ad sjá hana aftur eftir 1 og 1/2 ár. Hún sagdi mér ad tad vaeri mjög óvenjulegt ad fólk vaeri eitthvad ad sofa í bátnum, tetta vaeri alltaf svo mikid djamm. Mér fannst tad skýra margt tví konan í midasölunni hafdi horft á mig eins og ég vaeri eitthvad gedsjúk tegar ég bad hana um rúm - tvisvar....

alla vega tá áttum ég og Rettakaisa mjög gott kvöld í gaer, fórum med vinkonu hennar á tónleika, kostadi bara 2 evrur inn, bara trael billegt, segi ég. tetta voru mjög skemmtilegir tónleikar, 3 local hljómsveitir. Hell cat hét fyrsta, svona skemmtileg blanda af Belle and Sebastian og Beachboys. Mjög fyndnir gaura, allir í svona prjónudum ullarvestum. Naest var svo hljómsveitin Jelly Roll sem var svona melodramatísk rock/blús hljómsveit. Svöngvarinn tar var GEVEIKT saetur og söng mjög vel, ég ekkert smá hrifin mar. Var alltaf ad bída eftir tví ad Kira (vinkona Reetakaisa) myndi kynna okkur tví tau tekkjast víst eitthvad, en nei.... Sídasta hljómsveitin var svona fönk grúppa, mjög gódir spilarar en rosalega mikid djamm, stundum of mikid.

Jaeja, ég aetla ad fara ad haetta tessu í bili, vid skvísurnar aetlum ad fara ad skoda borgina og nördast saman. Reettakaisa er reyndar inni í herbergi ad hebrúísku (segir madur tad?...) Hún er gudfraedinemi hér í háskólanum í Turku. Já og ég komst ad svoldid merkilegu í gaer, Helsinki er í raun ekki höfudborg Finlands - Allavega ekki í augum Turkubúa. Málid er ad Turku er gamla höfudborgin en rússarnir ákvadu á sínum tíma ad tví skildi breytt og gerdu Helsinki ad höfudborg landsins, Turkubúum til mikillar maedu. Ég held teim finnist tetta bara vera hálfgert svindl....

ok, tá er tetta komid nóg. Ég fer til Helsinki á morgun ad hitta Reettu. Reyni ad láta heyra í mér tar. Hafid tad gott á medan elskurnar mínar!

|